Mín Menntun
Ég er íþrótta og heilsufræðingur að mennt með BSc gráðu í íþróttafræðum og MEd í heilsuþjálfun og kennslu frá HR. Einnig er ég með einkaþjálfara réttindi og hef lokið dómaramáskeiðum í fimleikum. Um langt skeið hef ég starfað sem einka- og hópþjálfari, bæði í World Class og Mjölni og haldið námskeið fyrir konur á meðgöngu og nýbakaðar mæður.
Ég er einnig hönnuður INSHAPE vörumerkisins sem er meðal annars sérhannað æfingarkerfi fyrir konur, heilsutengdir viðburðir og vörur
Allt sem við kemur heilsu og líkamsrækt er ástríða mín. Ég hef gaman af því að fara út fyrir ramman og hika ekki við að breyta og prófa nýja hluti er viðkoma æfingum og almennri heilsu. Legg mikla áherslu á að hafa skemmtilegt og stuðla þannig að jákvæðu hugarfari gagnvart hreyfingu
Samfélagsmiðlar
INSHAPE er vörumerki með fjölþætta nálgun á heilsu fyrir konur
Fylgstu með mér á instagram og fáðu upplýsingar um nýjustu vörur, tilboð og heilsuviðburði
INSHAPE
Ummæli
ilmhönnuður
Andrea Maack
Ég datt inn á INSHAPE námskeiðið hjá Gerðu eftir barnsburð en markmiðið var að koma mér í form. Hafði reynt að koma mér í gang sjáf en varð alveg hooked á bæði tímanna og eins að æfa með Gerðu.
Get ekki mælt nægilega með henni. Ég er komin með nýtt viðhorf gagnvart líkamlegri og andlegri heilsu.
Sjúkrahúsprestur
Hjördís Perla Rafnsdóttir
Gerða er án efa besti þjálfari og peppari sem ég hef kynnst. Hún er einstaklega vönduð manneskja, kærleiksrík og drífandi. Allir hennar frábæru eiginleikar endurspeglast svo í þeim vörum sem hún framleiðir undir INSHAPE vörumerkinu sínu
Vörumerkjastjóri, plötusnúður
Sóley Kristjánsdóttir
INSHAPE vörurnar eru ekki bara æfingavörur heldur minna mig á þann lífstíl að vera í góðu formi bæði andlega og líkamlega. Rækta bæði sjálfan mig og vináttuna. Svo elska ég þetta logo og fæ nostalgíu um bestu líkamsrækt sem ég hef nokkru sinni kynnst!! Svo eru þetta svo vandaðar og geggjaðar vörur að mann langar hreinlega að nota þær og hreyfa sig.
Plötusnúður, listakona og blaðamaður
Dóra Júlía
Hef aldrei upplifað jafn skemmtilega líkamsrækt og fyllst einhverjum innblæstri strax. Gerða sjálf er svo ótrúlega mögnuð, hvetjandi, hlý, ákveðin og tónlistin vel valin í fullkomnum takt við æfingarnar. Gerðu tókst að búa til svo stórkostlegt og valdeflandi andrúmsloft sem einkenndist af kvennakrafti Gerðu tekst líka alltaf að fá mann til að ögra sér á uppbyggilegan hátt sem skilar sér!